Flytja til eða vinna í Ástralíu

Vinna

Þeir sem hafa hug á að koma hingað til ástralíu og vinna í stuttan eða langan tíma án þess að gerast innflytjendur er bent á að skoða vefsíðu ástralska innflytjendaeftirlitsins.  Þar er að finna allar upplýsingar um þá flokka sem hægt er að sækja um í.  Vert er að geta þess að ísland og ástralía hafa ekkert samstarf sín á milli í þessum efnum.  Þar af leiðir að íslendingar sem hafa hug á slíku eiga erfitt með að fá heimildir til þess, nema í þeim tilfellum þar sem slíkt telst vera í þágu ástralska þjóðfélagsins.   

Ung fólk og aðrir þeir sem hafa áhuga á að vinna fyrir sér á bakpokaferðalagi um ástralíu eiga ekki kost á því, vegna þess að ísland og ástralía hafa ekkert samstarf um slíkt.  Sjá hér nánari upplýsingar.

 

Að gerast Innflytjandi

Ástralía setur kvóta á fjölda innflytjenda á ári hverju.  Fyrir árið 2000-2001 er kvótinn 76 þúsund innflytjendur.  Þessum kvóta er svo skipt í allskonar flokka eftir þeim ástæðum sem fólk sækir um innflytjendaleyfi.  Helstu flokkarnir eru eftirfarandi:

Skilled Migrants Fólk með sérþekkingu eða hæfni sem skortu er á í ástralíu
Business Migrants Fólk sem er tilbúið að setja á fót fyrirtæki í ástralíu sem eru vænleg til að skapa atvinnu.
Employer nomination Migrants Heimilar fyrirtækjum og fjölþjóðafyrirtækjum að ráða fólk með sérþekkingu eða flytja til starfsfólk á milli landa.
Family Migrants Fjölskyldur eða nákomnir sem búa í ástralíu geta sótt um leyfi til að heimila erlendum ástvinum eða ættingjum  að sameinast fjölskyldunni í ástralíu
Special Eligibility Heimilar þeim sem hafa haft ástralskt ríkisfang/innflytjendaleyfi í fortíðinni, ásamt fjölskyldumeðlimum frá Nýja Sjálandi
Refugees/Humanitarian Migrants Fólk sem telst vera flóttafólk eða aðrir sem uppfylla mannúðarskilyrði
Íbúar Nýja Sjálands Samkvæmt samningi á milli ástralíu og Nýja Sjálands.

Best er að kanna þetta rækilega áður en lagt er í að sækja um innflytjendaleyfi.  Umsókn kemur til með að kosta töluverða peninga.  Greiða þarf áströlskum yfirvöldum umsóknargjald.  Að auki þarf að greiða fyrir ýmsa hluti, svo sem læknisskoðun, ýmiss opinber gögn (sakaskrá, fæðingavottorð, búsetuvottorð, giftingavottorð ofl.) þýðingu á skjölum, staðfestingu á skjölum og ýmsan póst kostnað.  Kynntu þér málið á vefsíðu ástralska útlendingaeftirlitssin.  Ef allt gengur vel, þá endar það með því að áströlsk yfirvöld gefa þér sérstak "permanent residency" visa í vegabréfið þitt.  Það heimilar þér og þinni fjölskyldu að flytja til ástralíu og gerast "permanent resident".  Sem "permanent resident" hefur þú sömu réttindi og skyldur og venjulegur ástralskur ríkisborgari, fyrir utan tvennt.  Þér er ekki heimilt að bjóða þig fram eða  kjósa í kosningum og þér getur verið neitað um atvinnu hjá ástralskri stjórnsýslu. 

Ástralska sendiráðið í Stokkhólmi fer með málefni íslands fyrir hönd ástralska ríkissins.